Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2023 var lögð fram fyrirspurn Sigríðar Halldórsdóttur, dags. 3. apríl 2023, um breytingu á deiliskipulagi Stakkahlíðar, reits 1.714, vegna lóðarinnar nr. 17 við Hamrahlíð sem felst í aukningu á byggingarmagni lóðarinnar, bæta við einni hæð ofan á norðurhluta hússins og lengja inndregna 6. hæð til norðurs, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta, dags. 3. apríl 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2023, samþykkt.