Spítalastígur 10
Spítalastígur 10
Síðast Frestað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1203
28. mars, 2023
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á, breyta rishæð og fjölga íbúðum um eina ásamt því að breyta útistiga í húsi á lóð nr. 10 við Spítalastíg. Stærðir: 59,3 ferm., 206,8 rúmm. Samþykki meðlóðarhafa í mhl. 02 áritað á teikningu, umsagnir Minjastofnunar dags. 30. október 2017, 13.júní 2018, 10. september 2018 og 11. febrúar 2019 og lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09. mars 2018 við fsp. SN180103. Einnig fylgja útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. október 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2018 og minnispunktum dagsettum 27. nóvember 2018. Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 01. mars 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019.
Svar

Frestað. Vísað til athugasemda.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum
verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og
skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp
skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar
verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um
staðsetningu búnaðarins.Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
44. Starengi 2 - BN060638 Sótt er um leyfi til þess að byggja nýja hæð fyrir lager og skrifstofur,
með aðgengi um utanáliggjandi stiga við suðurhlið, ofan á verslunarhús á lóð nr. 2 við
Starengi.
Stækkun: xx.x ferm., xx.x rúm. Erindi fylgir umboð eiganda dags. 11. maí 2022, ódags. bréf
hönnuðar og afrit af deiliskipulagi sem tók gildi 23. september 2021 og yfirlit breytinga á A2
afriti af teikningum samþykktum 10. október 1996.
útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. júní 2022, ásamt
umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2022.