Fyrirspurn
Grensásvegur 1 - (fsp) breyting á deiliskipulagi - USK23010072 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. janúar 2023 var lögð fram fyrirspurn Fasteignafélagsins G1 ehf., dags. 3. janúar 2023, ásamt bréfi, dags. 3. janúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg sem felst í að í stað avinnurýma á jarðhæð verði gerðar tvær íbúðir vestan megin sem snúa að garði, samkvæmt uppdr. Guðmunds Gunnlaugssonar arkitekts, dags. 22. desember 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Grensásvegur 1