Frestað. Lagfæra skráningu.
24. Kleifarvegur 12 - Breytingar kjallara - garðskáli 1.hæð - BN061567 Sótt er um leyfi til að
breyta innra skipulagi í kjallara, baðherbergi er endurnýjað og stækkað og garðskála er
komið fyrir undir svölum 1. hæðar húss á lóð nr. 12 við Kleifarveg.
Stækkun: 31,7 ferm., 76,6 rúmm.
Erindi fylgir umboð eiganda íbúðar 01-0101 dags. 29. september 2022, samþykki í formi
áritunar á smækkað afrit aðaluppdráttar dags. 29. september 2022, afrit fundargerðar
húsfélags dags. 16. október 2022. og yfirlit breytinga unnið á afrit aðaluppdrátta erinda
BN057778 og BN058529. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa 20. október 2022 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 18. október 2022. og
bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022. Gjald kr. 13.200.
25. Korngarðar 1 - BN061727 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. hæðar og millipalls,
matshluti nr. 01, í húsi á lóð nr. 1 við Kornagarða.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti útgefinna aðaluppdrátta erinda BN056501 og
BN058458.
26. Kringlan 1 - BN061614 Sótt er um að innrétta fyrir tímabundna notkun leikskólarými fyrir 130
börn á 1. hæð skrifstofuhúss á lóð nr. 1 við Kringluna. Gjald kr. 13.200.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
27. Langholtsvegur 115 - BN060077 Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir fyrstu hæðar á
vesturhlið húss á lóð nr. 115 við Langholtsveg.
Stækkun er: 11,7 ferm., 30,5 rúmm. Erindi fylgir útgefið mæliblað dags. 23. september 2005.
Samþykki meðeigenda dags. 27. október 2021. Erindi fylgir bréf hönnuðar vegna frávika frá
gildandi deiliskipulagi og athugasemdum SHS dags. 20. janúar 2022.