Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
19. Kleifarvegur 12 - Breytingar kjallara - garðskáli 1.hæð - BN061567 Sótt er um leyfi til að
breyta innra skipulagi í kjallara, baðherbergi er endurnýjað og stækkað og garðskála er
komið fyrir undir svölum 1. hæðar húss á lóð nr. 12 við Kleifarveg.
Stækkun: 31,7 ferm., 76,6 rúmm.
Erindi fylgir umboð eiganda íbúðar 01-0101 dags. 29. september 2022, samþykki í formi
áritunar á smækkað afrit aðaluppdráttar dags. 29. september 2022, afrit fundargerðar
húsfélags dags. 16. október 2022. og yfirlit breytinga unnið á afrit aðaluppdrátta erinda
BN057778 og BN058529.Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa 20. október 2022 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 18. október 2022. og
bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022. Gjald kr. 13.200.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.
20. Korngarðar 1 - BN061727 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. hæðar og millipalls,
matshluti nr. 01, í húsi á lóð nr. 1 við Kornagarða.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti útgefinna aðaluppdrátta erinda BN056501 og
BN058458.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.