Fyrirspurn
Austurheiðar útivistarsvæði 2022 - áfangi 2 - framkvæmdaleyfi - stígur og dvalarsvæði - USK22122957 Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 16. desember 2022, um framkvæmdaleyfi fyrir Austurheiðar útivistarsvæði 2022, áfanga 2 sem felst í að gerður er stígur frá núverandi malarbílastæði við Rauðavatn ásamt því að útfært er dvalarsvæði við Rauðavatn. Einnig er lagt fram teikningasett umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í september 2022. Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2023. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Austurheiðar útivistarsvæði 2022.