Samþykkt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
43. Rafstöðvarvegur 14 - BN061824 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir lyftu
og innrétta gestastofu, viðburðarrými, skrifstofur og fundarherbergi, fjarlægja
utanhússklæðningar og endurgera straumskiptistöð Orkuveitu Reykjavikur á lóð nr. 14 við
Rafstöðvarveg.Erindi fylgir yfirlit og lýsing breytinga dags. 27. október 2022, umsögn
Minjastofnunar dags. 1. nóvember 2022 og greinargerð um brunahönnun dags. 23. nóvember
2022. Gjald kr. 13.200. BN061824
44. Selásbraut 132A - BN061709 Sótt er um leyfi til að setja niður djúpgámasett, þ.e. fimm
djúpgámar, fjóra 5,0 rúmm. og einn 3,0 rúmm., settið mun tilheyra íbúum Selásbrautar nr. 130
og 132 og Brekknaás nr. 2, 4, 6 og 8, á lóð nr. 132A við Selásbraut.
Stærð: 22,1 ferm., 71,9 rúmm. Gjald kr.13.200. BN061709
45. Síðumúli 15 - BN061812 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi norðurenda 2. hæðar og
3. hæðar, á 2. hæð er innréttað fyrir snyrtistofu, í húsi á lóð nr. 15 við Síðumúla.
Erindi fylgir greinargerð brunahönnuðar dags. 18. nóvember 2022 og yfirlit breytinga unnið á
afriti aðaluppdrátta útgefna þann 6. júní 1973.
46. Skipholt 1 - BN061851 Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN059412 þannig að rými 0035
er breytt úr atvinnurými í geymslur, rými 0106 er minnkað, íbúð 0101 er stækkuð og breytt í
tveggja herbergja íbúð, vatnsúðakerfi er fellt út og þess í stað bætt við flóttaleið, rýmisnúmerum
er fjölgað og skráningartafla uppfærð fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 1 við Skipholt.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.241.2 dags. 23. desember 2021, hæðablað dags. í maí 1955 og
yfirlit breytinga á óstimpluðum aðalteikningum dagsettum 11. janúar 2022. Gjald kr. 13.200.
BN061851
47. Snorrabraut 62 - BN061678 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN058929, þannig að
bílastæðum er fækkað, eignahaldi sameignar breytt, rýmisnúmer á 1. hæð breytast, í stað þess
að mhl. 01 eigi hlut í flóttaleið um stigagang er sett kvöð um aðgang að flóttaleið, sorpgeymsla
0107 verður í sameign allra og gluggaop á 1. hæð er stækkað og hurð gerð í stað glugga í
húsi á lóð nr. 62 við Snorrabraut. Gjald kr. 13.200. BN061678
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
Stuðlasel 7 - USK22122923 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum og nýrri
viðbyggingu við einbýlishús á lóð nr. 7 við Stuðlasel.
Stækkun: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Erindi fylgir mæliblað 4.923.2 dags. 4. október 1976 og hæðablað dags. mars 1975. Gjald kr.
13.200. USK22122923
48. Stuðlasel 7 USK2212923 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum og nýrri viðbyggingu
við einbýlishús á lóð nr. 7 við Stuðlasel. Stækkun: xx.x rúmm. Erindi fylgir mæliblað 4.923.2
dags. 4. október 1976 og hæðarblað dags. mars 1975. Gjald kr. 13.200
49. Suðurlandsbraut 34/Ár - BN061572 Sótt er um leyfi til byggingar á staðsteyptu fjölbýlishúsi,
byggingin er sjö hæðir auk kjallara með 70 íbúðum, verslun og þjónustu á 1. hæð til norðurs, í
norðurhorni lóðar, sorplausn íbúða í sjö djúpgámum norðvestan A reits orkureits, matshluti nr.
02, á lóð Suðurlandsbraut 34/Ár. Stærð mhl.02: 6.506,6 ferm., 20.222,5 rúmm. Erindi fylgir
greinargerð hljóðvistar dags. 3. október 2022. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa frá 24. nóvember 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24.
nóvember 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2022. Umsókn um
niðurrif er í erindi BN061409. Gjald kr.13.200. BN061572
50. Suðurlandsbraut 68-70 - BN061605 Sótt er um leyfi til að byggja léttbyggðan garðskála við
veitinga- og setustofu í flokki II, teg. g., samkomusalur fyrir 70 gesti, rými 01-0101, á
staðsteyptum undirstöðum og fjarlægja svalaskýli, rými 01-0156, sem var í inngarði við rými
01-0102, í húsi á lóð nr. 68-70 við Suðurlandsbraut. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags 19. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október
2022. Stækkun: 56,0 ferm., 158,2 rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti af teikningum
hönnuðar. Gjald kr.13.200. BN061605
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
51. Súðarvogur 9 - BN061814 Sótt er um 5 djúpgáma fyrir Súðarvog 9, á skika nr. 9A við
Súðarvog.
Stærð: 65% af 11,4 ferm., 32,5 rúmm.
Erindi fylgi afrit aðaluppdrátta erindis BN060276.
Kemur í stað BN061639 sem fellur úr gildi. BN061814
samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
52. Súðarvogur 11 - BN061815 Sótt er um 5 djúpgáma fyrir Súðarvog 11, á skika nr. 9A við
Súðarvog.
Stærð: 35% af 11,4 ferm., 32,5 rúmm.
Erindi fylgi afrit aðaluppdrátta erindis BN060088.
Kemur í stað BN061639 sem fellur úr gildi. BN061815
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.
53. Ránargata 4A - BN061724 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi hótels í flokki IV, teg.
a, hótel, 29 gistiherbergi eftir breytingu fyrir 62 gesti, þ.e. innra skipulagi allra hæða, fækkað
um eitt gistiherbergi á 4. hæð, bætt starfsmannaaðstaða, fjölgað snyrtingum, bætt við
líkamsræktarherbergi, breytingar gerðar á brunatæknilegum atriðum og svalahandrið
þaksvala hækkað á húsi á lóð nr. 4A við Ránargötu. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á
útgefnum aðaluppdráttum erindis BN054297. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa frá 18. nóvember 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 21.
nóvember 2022. Gjald kr.13.200
útskipt gögn bárust og skráð þann 22.12.2022.
Yfirferð áformadeildar unnin þann 3.1.2023.. BN061724
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
54. Síðumúli 10 - BN061873
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060857 þannig að byggð er hæð ofaná mhl. 01 úr
timbri klætt læstri málmklæðningu og innrétta skrifstofur og fundarherbergi, endurnýja lyftu,
framlengja stigahús og byggja flóttastiga á suðvesturhlið húss á lóð nr. 10 við Síðumúla.
Stækkun: 281,8 ferm., 1.090,8 rúmm.
Mhl. 01 eftir stækkun: 865,6 ferm., 3.189,4 rúmm.
55. Skeifan 11 - BN061770 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061362 þannig að innra
fyrirkomulagi verslunar er breytt á húsi nr. 11 á lóð Skeifunnar. Bréf hönnuðar dagsett
14.nóvember 2022 fylgir erindinu. Gjald kr.13.200. BN061770
56. Skipholt 5 - BN061792 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059811 - svalir/flóttapallur
íbúðar 0201 er minnkaður og flóttaleið færð og verði út um baðherbergi íbúðar, í húsi
matshluta nr. 01, á lóð nr. 5 við Skipholt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti útgefinna aðaluppdrátta erindis BN059811. Gjald
kr.13.200. BN061792
57. Sundaborg 1-15 - BN058004 Sótt er um leyfi til að setja upp led skjávarpa fyrir auglýsingar
sem er 3,28 metrar á breidd og 6,16 metrar á lengd, á vesturgafl húss nr. 1 á lóð nr. 1-15 við
Sundaborg. Erindi fylgir samþykki frá Húsfélagi Sundaborg dags 9. mars 2020, ljósmyndir og
tæknilegar upplýsingar frá framleiðanda led skjáa. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 8. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. október
2020. Gjald kr. 11.200. BN058004
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.
58. Vesturgata 40 - BN060247 Sótt er um leyfi til fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að
innrétta íbúð á 1. hæð, tómstundaherbergi í kjallara og breyta innra skipulagi á 2. og 3. hæð
húss á lóð nr. 40 við Vesturgötu. Erindi fylgir bréf f.h. umsækjanda dags. 15. nóvember 2021
ásamt bréfi og umboði frá eiganda dags. 18. október 2016. Erindi fylgir úrskurður UUA vegna
kæru nr. 150/2016 dags. 12. júlí 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa frá 7. janúar 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.
desember 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags.10. janúar 2022. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. september 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 20 október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október
2022.. BN060247
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki
er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.
Ýmis mál
59. Hólavallagata 3 - BN061350 Spurt er hvort leyft yrði að skipta í tvær íbúðir íbúð í kjallara og á
1. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3 við Hólavallagötu.
Erindi fylgja bréf umsækjanda dags. 8. og 9. ágúst 2022, eignaskiptayfirlýsing dags. 18.
janúar 2016 og myndir af íbúð í kjallara ásamt húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 28.
september 2022.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. desember 2022 fylgir
erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2022.. BN061350
Afgreitt. Sækja þarf um byggingarleyfi.