Frestað. Lagfæra skráningartöflu.
16. Starmýri 2 - BN061822 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN058605, breytt skráning á hluta
sameignar í sameign sumra, innan rýmis 03-0102 eru baðherbergi breytt og komið fyrir
þvottaherbergi og reistir veggir utan um stiga í stigahúsi á fjórðu hæð matshluta nr. 03, í húsi
nr. 2A á lóð nr. 2 við Starmýri. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á smækkuðu afriti teikninga
hönnuðar dags. 24. ágúst 2022. Gjald kr.13.200.
17. Suðurlandsbraut 8 - BN061750 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050317 þannig að
komið er fyrir skábraut til að bæta aðgengi að stigagangi 0404 svo og aðrar innri breytingar
sem hafa verið framkvæmdar á 1. hæð í húsi nr. 10 á lóð nr. 8 við Suðurlandsbraut.
Bréf frá hönnuði dags. 7. nóvember. 2022 fylgir erindi.
Tölvupóstur frá hönnuði dags. 16 nóvember 2022 þar sem hann óskar eftir að draga til baka
erindi : BN058873, BN058874, BN058875 og BN058876
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
18. Sundlaugavegur 30 - BN061882 Sótt er um leyfi til þess að innrétta hárgreiðslustofu í kjallara
heilsuræktarstöðvar í húsi nr. 30A, mhl.05, á lóð nr. 30 við Sundlaugarveg. Erindi fylgir yfirlit
breytinga á A3 afriti af aðalteikningum stimpluðum 22. maí 2007 og 15. nóvember 2014. Gjald
kr. 13.200.
19. Thorsvegur 1 - BN061885 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061156, hækkun
aksturshurðar á austurhlið tengivirkis, matshluta nr. 01, hús á lóð nr. 1 við Thorsveg.
Erindi fylgir óundirrituð smækkuð afrit teikninga hönnuðar dags. br.8.8.2022. Gjald 13.200
20. Tómasarhagi 32 - BN061473 Sótt er um leyfi til að gera stiga milli íbúða í kjallara og á 1. hæð
og sameina í eina eign, færa sorp út á lóð og breyta eignaskiptum í kjallara fjölbýlishúss á lóð
nr. 32 við Tómasarhaga. Erindi fylgir yfirlit breytinga og samþykki meðeigenda dags. 6. júlí
2022. Gjald kr. 12.600.
21. Óðinsgata 5 - BN061684 Sótt er um leyfi til að breyta brunalýsingu og koma fyrir nýjum svölum,
0207, á norðurhlið húss á lóð nr. 5 við Óðinsgötu. Umsögn Minjastofnunar Íslands dags 31.
október 2022 fylgir erindi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá
18. nóvember 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 21. nóvember 2022. Gjald
kr. 13.200.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.
22. Vesturgata 64 - BN061373 Sótt er um leyfi til að stækka bílakjallara, mhl. 08 og byggja þrjú
steinsteypt fjölbýlishús, þriggja og fimm hæða með 58 íbúðum, einangruð og klædd að utan á
lóð nr. 64 við Vesturgötu. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá Mannvit dags. 12. ágúst
2022 og samantekt á brunavörnum frá Mannvit dags. 1. júlí 2022. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 27. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags 27. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 28. október
2022. Stærð, mhl. 04: 2.456,4 ferm., 6.753,1 rúmm.Mhl. 05: 2.644,2 ferm., 7.161,7 rúmm.Mhl.
06: 1.840,1 ferm., 6.137,1 rúmm.Mhl. 08, stækkun bílageymslu: xx Gjald kr. 12.600.