Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 367
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á umferðargreiningu sem gerðar hafa verið í tengslum við Suðurlandsbraut - Borgarlínu.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn þakkar fyrir ágæta kynningu á umferðargreiningu í Reykjavík með tilkomu Borgarlínu um Suðurlandsbraut. Fulltrúi Framsóknar hefur efasemdir um að niðurstöður greiningarinnar endurspegli þann raunveruleika sem mun líta dagsins ljós þegar og ef núverandi tillaga um breytingu á Suðurlandsbraut verður að veruleika. Stór óvissuþáttur er að sjálfsögðu, hversu mikil notkun verður á Borgarlínunni. Framsókn telur nauðsynlegt að tillaga um breytingu Suðurlandsbrautar verði endurskoðuð með tillit til fjölda akreina akandi umferðar og þeim haldið óbreytt miðað við núverandi skipulag. Það er alltaf hægt að fækka akreinum þegar liggur fyrir hver ávinningur Borgarlínu um Suðurlandsbraut er.