Fyrirspurnin var lögð fram í janúar 2020, eða fyrir meira en tveimur árum. Þá höfðu ný umferðarlög tekið gildi og voru nýmælin þau að bílar merktir með stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða og bílar sem sinna akstursþjónustu fatlaðra máttu nú nýta sér göngugötur og jafnframt leggja þar í merkt stæði. Þetta olli miklu uppnámi hjá meirihlutanum og meirihluta skipulags- og samgönguráðs sem vildu ekki sjá bíla hreyfihamlaðra á göngugötum hvað þá að þeir gætu lagt þar. Farið var í aðgerðir til að fá Alþingi til að gefa Reykjavíkurborg ákvarðanafrelsi um hvar hreyfihamlaðir mættu leggja og yrði það þá í mesta lagi í hliðargötum. Þetta mál hefur verið til vandræða æ síðan. Engin bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða í göngugötum enda þótt bílar með stæðiskort megi aka þær götur og eiga rétt á að leggja þar. Mörg dæmi eru um að hreyfihamlaður einstaklingur hefur átt í mesta basli með að komast frá stæði í hliðargötu til að t.d. sinna erindum við Laugaveg. Ef vel á að vera þurfa hreyfihamlaðir að geta lagt bíl sínum í göngugötu til að sinna erindum sínum eftir atvikum.