Fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir upplýsingum um heildarkostnað greiningarvinnu og skýrslugerðar umhverfis- og skipulagssviðs um áhrif hámarkshraða áætlunar Reykjavíkur á ferðatíma Strætó. Um var að ræða innanhússvinnu og var óskað er eftir upplýsingum um tímafjölda sem fór í verkið og annan kostnað sem og heildarkostnað. Beðið var um verkið af meirihlutanum og Strætó sem hafði áhyggjur af því að lækkun hámarkshraða myndi hægja á Strætó. Í svari kemur fram að ekki hafi verið haldið bókhald um fjölda tíma sem fara í þetta verkefni eða annað innan skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Skrifstofan getur ekki svarað þessu en giskar á tveggja mánaða vinnu. Er ekki mikilvægt að halda vel utan um hvernig fjármagni er varið enda þótt vinnan sé innan skrifstofunnar?