Fyrirspurn
Umræða að beiðni áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Gerð hafa verið stór mistök. Einkavegur var gerður fyrir 1 aðila sem er nú staðfest með gögnum að hafi ruglað alla hæðarsetningu í Gufunesi. Gögnum hefur verið haldið frá aðstandendum og reynt að þagga málið í þrjú ár. Ekki hefur einu sinni verið fylgt lögbundnu samráðsferli. Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi ekki útfært í deiliskipulagi það sem þó ber að gera skv. skipulagsreglugerð, afstöðu gatna og jarðvegs við gólfhæð 1. hæðar húsa, hæð landslags á lóðum. Þetta er ákveðið og gert án vitundar og athugasemda- og ábendingarmöguleika almennings eftir því sem Flokkur fólksins kemst næst. Haldinn var loks fundur 25. apríl þar sem boðið var lækkun á götu og seinkun á gjalddögum. Þetta er slakt tilboð eftir allt sem á undan er gengið. Tafir hafa verið miklar og skemmdir á starfsemi í rúm 3. ár. Eftir því sem næst er komist er búið að framkvæma alla gatnagerð þarna á rangan hátt og með því mögulega brjóta á aðstandendum Loftkastalans stjórnsýslulagabrot, eignarréttarbrot og hegningarlagabrot. Af hverju var ekki fenginn óháður aðili til að mæla? Fulltrúi Flokks fólksins ítrekar að lenda þarf þessu máli og það fyrir kosningar. Málinu hefur verið vísað til innri endurskoðunar sem hefur nú hlutverk „umboðsmanns borgarbúa.