Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sem lögð var fram í borgarráði 31. mars 2022 og vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs: Fyrirspurn vegna erindis starfsmanna Vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar þar sem lýst er ófullnægjandi stöðu öryggismála, ófullnægjandi aðbúnað, óboðlegt og hættulegt vaktafyrirkomulagi og launa mismunun hjá starfsmönnum í vetrarþjónustu sem vinna sömu störf. Í erindinu er einnig lýst skoðanakúgun, forsjárhyggju, einelti og þöggun. Sagt var í bréfinu að gögn liggi fyrir varðandi þessi mál. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram fyrirspurnir um þetta grafalvarlega mál og hverjir séu ábyrgir fyrir alvarlegu ástandi sem þarna ríkir. Það hefur verið upplýst af borgaryfirvöldum að málið sé nú komið inn á borð Mannauðsdeildar. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga hvort Mannauðsdeild hafi sett sig í samband við starfsfólk vetrarþjónustu með það að markmiði að styðja við og hjálpa? Einnig væri gott að fá upplýsingar um hvort úrbætur hafi verið gerðar í tengslum við öryggismál, og þá hverjar? Hverjir hafa fyrir hönd borgarinnar verið í sambandi við starfsmenn Vetrarþjónustu vegna þessara mála?
Svar
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlandsins.