Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
Annað
Fyrirspurn
Staðsetning hjólabrautar í Gufunesi, tillaga         Mál nr. US220020 Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að hentugri staðsetningu fyrir hjólabraut í Gufunesi, dags. 20. desember 2021. Samþykkt og vísað til meðferðar skipulagsfulltrúa. Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: Staðsetning hjólabrautar í Gufunesi hefur verið endurskoðuð eftir að lagst hefur verið yfir staðarvalið í samráði við notendur. Þetta eru fyrirmyndarvinnubrögð og ánægjulegt er að jákvæð lausn sem sátt er um hafi orðið niðurstaðan. Það verður gleðilegt að taka næstu skref í málinu en kallað hefur verið eftir hjólabraut á svæðinu af íbúum, meðal annars í gegnum Hverfið mitt. Þórólfur Jónsson deildarstjóri Náttúru og garða og Atli Steinn Árnason frístundafræðingur taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. (B)    Byggingarmál Fylgigögn Staðsetning hjólabrautar í Gufunesi