Fyrirspurn
Erindi íbúaráðs Grafarvogs vegna vegtengingar við Gufunes - MSS2110024 Mál nr. US220003 Lagt fram bréf íbúaráðs Grafarvogs, dags. 17. janúar 2021, um bókun fulltrúa íbúaráðsins um svar umhverfis- og skipulagssviðs við fyrirspurn íbúaráðs Grafarvogs um afgreiðslu skipulags- og samgönguráðs á deiliskipulagstillögu um vegtengingu við Gufunes. Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: Ekki þótti unnt að bregðast við ábendingum íbúaráðsins en samgöngutengingarnar inn í hverfið á þessum stað voru taldar skynsamlegasta lausnin. Þær stytta leiðir inn í hverfið og auka t.d. möguleika á almenningssamgöngum sem mikið hefur verið kallað eftir. Eðlilegt er að horft verði til öryggis allra vegfarenda þegar gatnamót hins nýja vegar í Gufunesið og Strandvegar verða endanlega hönnuð. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Lögð er fram leiðrétt bókun fulltrúa í íbúaráði Grafarvogs vegna svars við fyrirspurn um afgreiðslu skipulags- og samgönguráðs á deiliskipulagstillögu um vegtengingu við Gufunes. Fulltrúi Flokks fólksins styður þessa bókun og hvetur borgaryfirvöld til að endurskoða málið í heild sinni. Þarna er krafist úrbóta og hafa verið lagðar fram tillögur til þess fallnar að bæta öryggi og flæði núverandi vegar og gatnamóta. Í bókun segir að ekkert hafi verð hlustað á framlögð rök. Nú reynir á meirihlutann að gera einmitt það sem hann segist alltaf vera að gera „að hlusta á borgarbúa/íbúa. Fylgigögn Erindi íbúaráðs Grafarvogs vegna vegtenginga í Gufunesi