Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
Annað
Fyrirspurn
Gufunes, stofnun nýrra lóða     (02.2)    Mál nr. SN210807 Lagt fram bréf Landupplýsingardeildar, dags. 12. janúar 2022, til skipulagsfulltrúa þar sem óskað er eftir samþykki til að stofna tvær nýjar lóðir, Gufunesveg 19 og Gufunesveg 21. Um er að ræða afmarkanir sem ná utan um núverandi byggingar innan svæðis, að stærð 2.885 fm fyrir Gufunesveg 19 og stærð 5.508 fm fyrir Gufunesveg 21. Umræddar byggingar voru auglýstar til sölu og unnið hefur verið að kaupsamningi í kjölfarið.  Lóðirnar eru teknar úr landi Gufuness. Einnig er lagt fram breytingarblað og lóðauppdrættir dags. 12. janúar 2022 og tillaga/hugmyndir arkitektastofunnar JVST ódags. að lóðamörkum, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. janúar 2022. Lagt er til að skipulags- og samgönguráð samþykki stofnun framangreindra lóða í samræmi við meðfylgjandi gögn. Samþykkt að afmarka lóðirnar við Gufunesveg 19 og 21 á þann hátt sem umsókn og innsendar teikningar sýna. Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Fylgigögn Gufunes, stofnun nýrra lóða