Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 27
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Magneu Þóru Guðmundsdóttur dags. 15. október 2018 um hækkun á húsunum nr. 47 við Hrísateig og 74A við Laugarnesvegi um tvær hæðir, samkvæmt tillögu Teiknistofunnar Stiku ehf. dags. 11. október 2018. Fyrirspurninni frestað, umsækjandi hafi samband við embættið, og er nú lögð fram að nýju ásamt nýrri tillögu Teiknistofunnar Stiku ehf. dags. 7. janúar 2019 og skuggavarpi dags. janúar 2019 um hækkun húsanna um tvær hæðir og eina inndregna hæð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. febrúar 2019.  Skipulags- og samgönguráð gerir ekki athugasemd við að umsækjandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi með tilliti til þeirra leiðbeininga sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. febrúar 2019.
Svar

Kristín Soffía Jónsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.

Gestir
Jón Kjartan Ágústsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
105 Reykjavík
Landnúmer: 104531 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020697
Síðasta markaðsverð
46.000.000 kr.
Einbýli · 168 m² · 29.08.2024
Kaupskrá 3 eignir
46.000.000 kr. 29.08.2024
Einbýli · 168 m² · 4 herb. · bygg. 1977 · HMS
27.100.000 kr. 30.12.2015
Fjölbýli · 117 m² · 2 herb. · bygg. 1942 · HMS
33.000.000 kr. 17.11.2011
Fjölbýli · 202 m² · 2 herb. · bygg. 1942 · HMS
Deiliskipulag
Stgr. 1.360-1.365, Teigahverfis - syðri hluti
Samþykkt 02.07.2002 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag