Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2011 þar sem sótt er um leyfi til að breyta skrifstofurými á 5. hæð í íbúð, stækka suðursvalir á 5. hæð, setja reykháf fyrir arinn til íbúðar og breyta anddyri og inngangi á 1. hæð hússins á lóð nr. 8 við Aðalstræti. Jákvæð fyrirspurn fyrir íbúð BN042879 12. apríl 2011 fylgir. Samþykki meðeigenda fylgir á A3 teikningum. Bréf frá hönnuði dags. 24. maí 2011 og tölvupóstur dags. 25. maí 2011 fylgir. Gjald kr. 8.000
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á notkun. Ekki er þó hægt að mæla með stækkun svala yfir lóðamörk og út í Bröttugötu.