Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við anddyri beggja íbúða á neðri hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 39 við Bauganes. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2016. Stækkun A-rými 11,4 ferm., 30,8 rúmm. Samþykki meðeigenda dags. 17.11.2016 fylgir erindi. Gjald kr. 10.100
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2016.