Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja, breyta og hækka rishæð, innrétta þar íbúð og stækka kvisti á húsi á lóð nr. 42 við Skipasund. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2015. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 13. september 2015. Gjald kr. 9.823
Svar
Jákvætt með þeim skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2015.