Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að stækka svalir hússins nr. 57 á lóðinni nr. 55-57 við Framnesveg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 28. júní 2012. Bréf fyrirspyrjanda (ódags.) fylgir erindinu, ásamt teikningum.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra dags. 28. júní 2012.