Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. mars 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli úr stálstyrktum prófílum með tvöföldu einangrunargleri og einangrandi plötum á milli svala á 1. og 2. hæð á íbúðarhúsi á lóð nr. 8 við Hvammsgerði. Bréf frá hönnuði dags. 1. mars. 2011, bréf frá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála dags. 27. janúar 2011 fylgir erindinu. Stærðir 11,2 ferm., 29,7 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 2.376
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.