Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Þakkað er fyrir kynningu á útvistun úrgangshirðu í Breiðholti. Verkefnið er tækifæri til að kanna hvort veita megi jafn góða eða betri þjónustu með hagkvæmari hætti. Áhersla er lögð á skýrar þjónustukröfur, góða upplýsingagjöf til íbúa og markvisst eftirlit með framkvæmdinni. Til að tryggja raunhæfan samanburð við eigin rekstur borgarinnar verði kostnaður, þjónustugæði, áreiðanleiki og ánægja íbúa metin með sambærilegum hætti. Í lok hvers árs verður gerð könnun meðal íbúa Reykjavíkur á ánægju með úrgangshirðu og verður hún endurtekin árlega til að fylgjast með þróun þjónustunnar. Niðurstöður verði kynntar ráðinu reglulega og nýttar til að bæta úrgangshirðu í borginni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar eru opnir fyrir því að skoða ólík rekstrarform í sorphirðu borgarinnar. Slíkar ákvarðanir verða þó að byggjast á gögnum og skýrum markmiðum. Einkarekstur er síður en svo sjálfkrafa hagkvæmari eða betri fyrir borgarbúa. Áður en ráðist er í sex til átta ára tilraun þarf að liggja fyrir hvaða vanda eigi að leysa, hver núverandi kostnaður og þjónustugæði eru og hvaða árangri er stefnt að. Nauðsynlegt er að bera saman kostnað, þjónustugæði og ánægju íbúa yfir nokkur ár, bæði við önnur hverfi og sambærileg sveitarfélög, og tryggja að hægt sé að bregðast við ef tilraunin skilar ekki árangri. Í ljósi aukinnar áherslu meirihlutans á útvistun og einkarekstur er sérstaklega mikilvægt að ákvarðanir byggist á gögnum og raunverulegum ávinningi fyrir borgarbúa, en ekki fyrirframgefnum hugmyndum um hvaða rekstrarform sé best. Rekstrarformið má aldrei verða markmið í sjálfu sér. Það eru hagsmunir borgarbúa, þjónustugæði og raunveruleg hagkvæmni sem eiga að ráða för.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Einkavæðing hirðunnar í Breiðholti er síður en svo töfralausnin sem bætir þjónustu við íbúa og lækkar um leið gjöldin. Það er skoðun Vinstrisins að Reykjavíkurborg standi sig afar vel í þeim lögbundnu verkefnum sem hún nú sinnir á því sviði. Það sýna viðhorfskannanir. Það er líka skoðun Vinstrisins að Reykjavík eigi sjálf að bera ábyrgð á þeim verkefnum sem úrgangsmálin kalla á, minnka sóun, þróa lausnir í umhverfisvernd, innleiða hringrásarhagkerfið og stemma stigu við loftslagsbreytingum af mannavöldum. Því er best að sorphirðan sé á einni hendi, hjá borginni. Í umræðunni um sorphirðuna og úrgangsmálin virðast þessi atriði því miður gleymast og nú eru komnir til valda flokkar sem skeyta engu um að axla ábyrgð á þessum brýnu og aðkallandi málum samtímans og velja frekar að telja baunir og setja þær fáu sem gætu fundist, í skálar einkaaðila, án þess að vita hver útkoman verður. Þetta er bæði óábyrgt og ber vott um hugmyndafræðilega fátækt.