Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 368
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjölgun gangbrauta í Vogahverfi. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 21 liður, dags. 15. janúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Vísað inn í vinnu við gerð umferðaröryggisáætlun.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins minna á fyrri tillögur sínar og ábendingar í þágu aukins umferðaröryggis í Vogabyggð. Auka þarf umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum í hverfinu með snjallstýringu gangbrautarljósa. Um er að ræða gatnamót Sæbrautar-Kleppsmýrarvegar-Skeiðarvogs, Sæbrautar-Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar-Dugguvogs-Skútuvogs. Þá þarf að ráðast í úrbætur á gatnamótum Knarrarvogs og Súðarvogs í þágu óvarinna vegfarenda. Þarna er slysahætta vegna mikillar umferðar um gatnamótin af ökutækjum, sem eru á leið til eða frá bílastæðum fjölsóttra atvinnufyrirtækja við Knarrarvog. Setja þarf upp skýrar varúðarmerkingar þar sem Knarrarvogur þverar fjölfarinn hjólastíg Kelduleiðar, t.d. með merki um hjóla- og göngustíg og með því að lita hjólareinina á þessum stað. Þá þarf að taka upp stöðvunarskyldu á gatnamótunum gagnvart umferð frá Knarrarvogi í stað biðskyldu. Enn og aftur skal minnt á fyrri tillögur Sjálfstæðisflokksins um að leitast verði við að leggja sérmerktar hjólareinar milli götu og gangstéttar í Vogabyggð þar sem aðstæður leyfa. Við hönnun og skipulag Vogabyggðar fórst fyrir að gera ráð fyrir slíkum hjólareinum, sem hefði verið hægðarleikur því gangstéttar í hverfinu eru flestar breiðar og rúmgóðar. Æskilegt er að slíkar hjólareinar verði lagðar við þær götur, sem enn eru ófrágengnar í hverfinu.