Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 362
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um úrbætur á gangbraut á gatnamótum Reykjavegs og Kirkjuteigs, sbr. 26. liður fundargerðar borgarráðs, dags. 13. nóvember 2025. Tillögunni var vísað til meðferðar til umhverfis- og skipulagsráðs.
Svar

Samþykkt að vísa tillögunni frá. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn vill benda á að þó að sambærileg tillaga hafi verið samþykkt í Umhverfis- og skipulagsráði þann 19 nóvember s.l. þá skal vekja athygli á því að sú tillaga gekk lengra, þar sem lagt er til að SFS tryggi gangbrautarverði við gatnamótin. Fulltrúi Framsókn vill árétta mikilvægi þess að gatnamótin verði vöktuð til að auka öryggi barna á leið í og úr skóla.