Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 351
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um göngustíg við Árskóga 1-3, sbr. 19. liður fundargerðar borgarráðs dags. 24. júlí 2025. Tillögunni var vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til meðferðar.
Svar

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Þegar er búið að bregðast við athugasemdum íbúa og gera úrbætur á göngustígnum og fór sú vinna af stað í sumar. Úrbæturnar voru kynntar á síðasta ráðsfundi. Því er tillögunni vísað frá.