Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 335
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um mjódd, sbr. 1 liður fundargerðar borgarstjórnar dags. 4. mars 2025.
Svar

Samþykkt að Umhverfis- og skipulagssviði sé falið að koma með tillögur að útfærslu með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Úrbætur á skiptistöðinni í Mjódd eru löngu tímabærar. Óþarfi er að ,,vinna tillögur að úrbótum” á skiptistöðinni eins og nýr meirihluti leggur til enda hefur lengi legið ljóst fyrir hvað þurfi að gera eins og ítrekaðar tillögur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið bera með sér. Hvetjum við til þess að strax verði ráðist í úrbætur á skiptistöðinni í þágu strætisvagnafarþega í stað tefja málið enn frekar með því að vísa því til vinnslu í borgarkerfinu. Frá árinu 2016 hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítrekað lagt til slíkar úrbætur en talað fyrir daufum eyrum þriggja vinstri meirihluta, sem setið hafa á tímabilinu. Slíkt skeytingarleysi en ótvíræður vitnisburður um slaka verkstjórn og metnaðarleysi í málefnum almenningssamgangna.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Oft hefur verið reynt að ganga í það að endurskipuleggja Mjóddina en það hefur aldrei gengið upp því ekki hefur verið haft samráð við verslunareigendur og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Það er því mikilvægt að bjóða öllum hlutaðeigandi að borðinu við slíka endurskipulagningu, því annars er hætt við að þessi tilraun verði ekki mikið annað en nákvæmlega það; tilraun. Fulltrúar Framsóknar fagna því að breytingatillaga okkar við upphaflega tillögu samstarfsflokkana svokölluðu hafi verið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á fundi borgarstjórnar þann 4. mars sl.