Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um almenningssalerni, sbr. 3. liður fundargerðar, dags. 19. september 2024. Tillögunni var vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssvið, skrifstofu borgarlandsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka íbúaráði Miðborgar og Hlíða fyrir þarfa ábendingu þess efnis að fjölga þurfi almenningssalernum í miðborginni, sér í lagi á vinsælum ferðamannastöðum.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Flokkur fólksins tekur undir tillögu Íbúaráð Miðborgar og Hlíða um að fjölga almenningssalernum í Miðborg, sér í lagi á vinsælum ferðamannastöðum. Almenningssalerni eru of fá í Reykjavík. Það eru 5 salernisturnar Reykjavík, en þar af hefur salernisturn í Hljómskálagarði ekki verið virkur lengi og ekki hefur fundist lausn á því að koma honum í lag aftur, sem er sérkennilegt. Fulltrúi Flokks fólksins veit til þess að komið hafa all margar ábendingar m.a. frá ungu fólki um að fjölga þurfi almenningssalernum í borginni. Eitt er að setja upp klósett og hitt að halda því við og sjá um tilheyrandi þrif. Fátt er meira óaðlaðandi en að koma inn á almenningssalerni sem ekki hefur verið þrifið um tíma. Enn meira óaðlaðandi er að ganga fram hjá þar sem fólk hefur gert sínar þarfir í görðum og bílastæðahúsum.