Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um innleiðingu nýrrar strætóleiðar fyrir úthverfi Reykjavíkurborgar, sbr. fundargerð borgarráðs, dags. 27. febrúar 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 20. janúar 2024 ásamt fylgigögnum.
Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar, gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Sú leið sem beðið er um myndi kosta 600-800 milljónir árlega en hægt er að tengja þessi svæði saman með einni skiptingu. Með nýju leiðarneti Borgarlínu er áætlað að leiðir sem tengjast öllum þeim stöðum sem nefndir eru í tillögunni mætist við Krossamýrartorg á Ártúnshöfða. Þar er því kjörin skiptistöð fyrir þau sem þurfa að komast á milli þeirra svæða sem nefnd eru án þess að það þurfi að hlykkja leiðir til en almennt er það keppikefli við skipulag almenningssamgangna að leiðir vagnanna séu sem beinastar og að sem fæstir og minnstir krókar séu á þeim. Það er svo að þeir sem sitja í vögnunum þurfi sem fæsta króka að taka og almenningssamgöngur séu þannig raunverulegri valkostur fyrir vegfarendur t.d. í samanburði við það að aka í bíl. Vegna ofangreinds er ekki talið skynsamlegt að verja 800 milljónum á ári í þessa nýju strætóleið að svo stöddu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja tillögu ungmennaráðs Árbæjar og Holta um bættar almenningssamgöngur fyrir íbúa Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts vera athyglisverða og að full ástæða sé til að skoða hana betur. Beinum tengingum milli eystri hverfa borgarinnar er ábótavant og er það ákveðinn veikleiki á strætisvagnakerfinu. Rétt er að skoðað verði til hlítar hvort hægt sé að bæta úr þessum veikleika með því að koma á beinni tengingu milli Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts og jafnvel fleiri hverfa í austurhluta borgarinnar, t.d. Grafarvogs og Breiðholts.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Svör til ungmennanna koma mjög seint því það er ár síðan þessar tillögur voru lagðar fram. Fulltrúanum finnst líka það vera frekar lélegt að afskrifa þessa tillögu með því að tala um að þetta sé dýrt og að engar úrbætur séu mögulegar fyrr en borgarlína kemur. Í framhaldi væri fróðlegt að vita hver er samanlagður kostnaður vegna þeirra 11 leiða sem um þessa borgarhluta aka. Spurningar vakna hvort hægt væri að skoða þessa tillögu ungmennaráðsins í samhengi við þær leiðir m.t.t. hvort mögulega væri þarna tækifæri til endurbóta á því 11 leiðakerfi sem nú þegar er í notkun? Finnst fulltrúanum því þarna vera algjörlega gengið framhjá vilja og tillögu ungmennaráðsins - sem n.b. eru fulltrúar mikils fjölda viðskiptavina
Strætó bs.