Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 330
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð Sorpu bs. dags. 4. desember 2024 ásamt fylgigögnum. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Liður 4: Málefni urðunarstaðar – heimild til að skoða samstarf um rekstur urðunarstaða við önnur byggðasamlög: Þessi liður ber með sér að þrátt fyrir að dregið hafi úr urðun eru enn vandræði með urðun og þau fara vaxandi því að enginn vill bjóða fram land til urðunar. Unnið að því að lágmarka urðun á urðunarstaðnum í Álfsnesi í kjölfar viðauka sem gerður var við eigendasamkomulag Sorpu í nóvember árið 2023. Í viðaukanum segir meðal annars að Sorpa skuli leita að nýjum urðunarstað fyrir höfuðborgarsvæðið. Liður 5: Starfskjaranefnd, Stjórn Sorpu skipar starfskjaranefnd og sitja í henni þrír fulltrúar, tveir óháðir en sá þriðji er formaður stjórnar Sorpu. Þetta hefur komið fram áður en varla er það eðlilegt að formaður stjórnar Sorpu sitji í nefnd sem ákvarðar laun hans.