Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks þakka fyrir góða kynningu á GreenInCities. Verkefnið er mikilvægt framlag til eflingar grænna svæða og líffræðilegs fjölbreytileika í Efra-Breiðholti, með áherslu á félagslegan jöfnuð og virka þátttöku íbúa. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hvernig umfangsmikið samráð við börn og fullorðna hefur mótað hugmyndir um ætan almenningsgarð þar sem ræktun, fræðsla, leikur og samvera fara saman. Fulltrúarnir lýsa yfir stuðningi við verkefnið og hlakka til að fylgjast með framvindu þess.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna þátttöku Reykjavíkurborgar í alþjóðlega samstarfsverkefninu GreenInCities, sem fjármagnað er af Horizon-áætlun Evrópusambandsins. Það er mikilvægt stefnumál að borgin taki virkan þátt í verkefnum sem efla græn svæði, líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsþol í þéttbýli, ekki síst þegar þeim innviðum er beitt markvisst til þess að auka jöfnuð íbúa og bæta líðan í nærumhverfi. Við fögnum sérstaklega að verkefnið sé framkvæmt í Efra-Breiðholti. Samstarf af þessu tagi sýnir hversu dýrmætir alþjóðlegir styrkir eru fyrir framþróun og hönnun lífvænlegra hverfa í borginni. Það lýsir hins vegar mikilli mótsögn í forgangsröðun meirihlutans að þiggja kynningu á mikilvægum alþjóðlegum styrkveitingum á sama tíma og búið er að leggja niður Rannsóknaþjónustu Reykjavíkur. Sú eining hafði einmitt þá sérþekkingu og reynslu sem þarf til að sækja og reka svona stór verkefni sem færa verulegar tekjur inn í borgarsjóð. Það er skammsýni að skera niður styrkja- og tekjuaflandi stjórnsýslustörf í nafni hagræðingar, þegar slíkt stórskaðar getu borgarinnar til að fjármagna græna umbreytingu og samfélagslegan jöfnuð til framtíðar. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að Græna plani borgarinnar verði fylgt eftir af festu og að alþjóðlegu samstarfi verði tryggt traust faglegt bakland.
Lögð fram svohljóðandi gagnbókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgin mun halda áfram með umrætt verkefni, sem þegar hefur hlotið styrk, og ekki er talið að breytingar á skrifstofu borgarstjóra muni hafa áhrif á framgang þess. Jafnframt verður áfram horft til annarra tækifæra til samstarfs og styrkveitinga sem geta stutt við verkefni borgarinnar.