Hólmsheiði 2. áfangi - Deiliskipulag athafnasvæðis - SN210147 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir Hólmsheiði, athafnasvæði, áfa
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 999
6. febrúar, 2025
Annað
Fyrirspurn
Hólmsheiði 2. áfangi - Deiliskipulag athafnasvæðis - SN210147 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir Hólmsheiði, athafnasvæði, áfangi 2. Skipulagssvæðið er um 50 ha að stærð og afmarkast af Suðurlandsvegi og Hólmsá í suðri og væntanlegs athafnasvæðis (áfangi 1) til austurs. Skipulagstillagan gerir ráð stórum og fjölbreyttum atvinnulóðum, alls 6 talsins, undir ýmis konar starfsemi sem fellur að markmiðum Aðalskipulags Reykjavíkur 2040. Áhersla er lögð á að halda í og skapa græna ímynd byggðar og umhverfis á svæðinu og skulu mannvirki, byggingar og önnur manngerð inngrip á lóðum búa yfir arkitektúr sem skapar sterka tengingu við aðliggjandi náttúru. Jafnframt er lögð fram greinargerð, skipulagsskilmálar og umhverfisskýrsla A2F Arkitekta, dags. 5. september 2024. Auk þess er lögð fram drög að fornleifaskráningu Borgarsögusafns Reykjavíkur, ódags., jarðfræðiskýrsla frá COWI um sprunguathugun á svæðinu, dags. maí 2024, og skýrsla Vatnaskila um mat á mögulegri mengunarhættu gagnvart nærliggjandi vatnsbólum, dags. maí 2024. Tillagan var auglýst frá 28. nóvember 2024 til og með 31. janúar 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.