Reitur 1.181.3, Lokastígsreitur 4 - breyting á deiliskipulagi - Njarðargata 61 Lögð fram að nýju umsókn Hjalta Brynjarssonar, dags. 14. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.3, Lokastíg
Njarðargötu 61
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 989
14. nóvember, 2024
Annað
Fyrirspurn
Reitur 1.181.3, Lokastígsreitur 4 - breyting á deiliskipulagi - Njarðargata 61 Lögð fram að nýju umsókn Hjalta Brynjarssonar, dags. 14. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.3, Lokastígsreits 4, vegna lóðarinnar nr. 61 við Njarðargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á byggingarreit Njarðargötu 61 svo unnt verði að byggja 3 hæðir og ris á lóðinni með allt að 8 íbúðum. Núverandi stigahús víkur ásamt geymsluskúr og nýtt stigahús með lyftu er fellt inn í kropp hússins í stað þess sem teygir sig í norðvestur átt í dag, byggingarmagn eykst og nýtingarhlutfall hækkar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Nordic, dags. 5. mars 2024. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 24. apríl 2023 og 16. ágúst 2023 og ábending Veitna, dags. 6. maí 2024. Samþykkt að framlengja athugasemdarfrest til og með 10. desember 2024.