Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júní 2024 var lögð fram fyrirspurn
Arkís arkitekta ehf.
, dags 12. júlí 2021, ásamt bréfi, dags. 12. júlí 2021, um breytingu á notkun lóðanna að Bústaðavegi 151B-D ásamt breytingu á landnotkun í aðalskipulagi. Einnig var lögð fram tillaga Arkís arkitekta, dags. 28. júní 2021 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. febrúar 2022. Fyrirspurn var lögð fram að nýju ásamt bréfi Óskars Rafnssonar, ódags., þar sem óskað er eftir endurskoðun á afstöðu skipulagsfulltrúa varðandi notkun lóðanna. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. febrúar 2022, staðfest.