Skúlagötusvæði - breyting á deiliskipulagi - Lindargata 14 - SN220704
Lindargötu 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 958
22. febrúar, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Plúsarkitekta ehf. og Fring ehf. , dags. 3. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 14 við Lindargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verður að hækka húsið um eina hæð, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta dags. 13. febrúar 2023. Einnig er lagt fram skuggavarp Plúsarkitekta dags. 13. febrúar 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. apríl 2023 til og með 17. maí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Fjórir eigendur og leigjendur að Klapparstíg 14, dags. 14. maí 2023, Guðni Pálsson, dags. 15. maí 2023, Ólafur Th. Ólafsson og Birna Eggertsdóttir, dags. 16. maí 2023, Friðrik Steinn Kristjánsson og Ingibjörg Jónsdóttir f.h. Silfurbergs ehf. og Berg Contemporary ehf. og Kristinn Pálmarsson f.h. K16 ehf., dags. 15. maí 2023 og danska sendiráðið, dags. 15. maí 2023.
Vísað til umhverfis - og skipulagsráðs.