Síðumúli 2-6 - breyting á deiliskipulagi - Síðumúli 6 - SN220763 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar f.h. H301 ehf., dags. 29. nóvemb
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 953
15. febrúar, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar f.h. H301 ehf., dags. 29. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Síðumúla 2-6 vegna lóðarinnar nr. 6 við Síðumúla. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóð minnkar og lóðarmörk dragast að húsvegg ásamt því að byggingarreitur stækkar og byggingarmagn eykst. Núverandi hús verður hækkað um eina hæð með efstu hæð inndregna og viðbygging sem verður á núverandi bílastæði verður jafn há framhúsi og einnig með inndregna efstu hæð. Sameiginlegt útisvæði íbúa hússins verður á þaksvölum og jarðhæð sunnan megin við hús, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta, dags. 13. febrúar 2024. Einnig er lagt fram minnisblað Batterísins arkitekta, dags. 13. febrúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.