Lækjargata 1 - breyting á deiliskipulagi - Bankastræti 3 - SN220731 Að lokinni forkynningu er lögð fram að nýju forsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. nóvember 2023, vegna fyrirhugaðrar breyt
Lækjargata 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 951
1. febrúar, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni forkynningu er lögð fram að nýju forsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. nóvember 2023, vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi fyrir Lækjargötu 1, Stjórnarráðshússlóð, samþykkt í borgarráði 2. september 2021. Breytingin felur í sér stækkun á deiliskipulagssvæði lóðarinnar, þannig að lóðin Bankastræti 3 verði hluti af deiliskipulaginu. Forsögnin var kynnt frá 14. desember 2023 til og með 17. janúar 2024. Eftirtaldir sendu umsagnir: Forsætisráðuneytið sem lóðarhafi að Lækjargötu 1, dags. 17. janúar 2024, og sem leigutaki að Hverfisgötu 4A og 6A , dags. 17. janúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2024 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til kynningar.