Fyrirspurn
Kjalarnes, Saltvík - breyting á deiliskipulagi - SN220797 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf., dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst að færa reiti C og D til að koma reitunum nær núverandi vegi og koma jafnframt reit C fjær reit B, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 6. desember 2022, uppf. 9. mars 2023. Einnig er lögð fram fornleifaskráning Fornleifastofnunar Íslands frá 2023 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 1. mars 2023. Tillagan var í auglýsingu frá 25. apríl 2023 til og með 9. júní 2023. Eftirtaldir sendu umsagnir/ábendingu: íbúaráð Kjalarness, dags. 16. maí 2023, og Minjastofnun Íslands, dags. 1. júní 2023, 20. september 2023 og 20. október 2023, og Veitur, dags. 17. maí 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júní 2023 og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.