Norður Mjódd - Stekkjarbakki 4-6 og Álfabakki 7 - skipulagslýsing - SN220741 Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing Klasa og JVST, dags. í maí 2023 vegna fyrirhugaðrar breytingar á d
Stekkjarbakki 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 937
18. október, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing Klasa og JVST, dags. í maí 2023 vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Norður Mjóddar fyrir lóðirnar Stekkjarbakka 4-6 og Álfabakka 7. Í vinnu vegna breytingar á deiliskipulagi verður áhersla á blandaða byggð. Á lóðunum verði komið fyrir íbúðum, matvöruverslun, atvinnustarfsemi, dvalarsvæðum og samgönguinnviðum. Breytingin felst m.a. í því að breyta byggingarreitum, lóðarmörkum, hæð húsa og fjölbreyttri landnotkun frá því sem gildandi deiliskipulag frá 1999 heimilar. Ekki er um stækkun lóða að ræða en lóðarmörk geta breyst. Lýsingin var kynnt frá 27. júlí 2023 til og með 31. ágúst 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Guðmundur H. Einarsson, dags. 28. júlí 2023, Umhverfisstofnun, dags. 1. ágúst 2023, Minjastofnun Íslands, dags. 11. ágúst 2023, Verkefnastofa Borgarlínu, dags. 15. ágúst 2023, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 16. ágúst 2023, Vegagerðin, dags. 17. ágúst 2023, Kópavogsbær, dags. 18. ágúst 2023, Veitur, dags. 18. ágúst 2023, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, dags. 18. ágúst 2023, Skipulagsstofnun, dags. 23. ágúst 2023, íbúaráð Breiðholts, dags. 31. ágúst 2023, Hildur Gunnarsdottir f.h. 116 íbúa og fasteignaeigenda í 63 fasteignum í Stekkjum, Bökkum og Selum, dags. 31. ágúst 2023, fjögur nöfn úr tveimur húsum bættust við undirskriftalistann, sbr. tölvupóst Hildar Gunnarsdóttur, dags. 7. september 2023, skipulagsdeild Strætó bs., dags. 31. ágúst 2023, Sigrún Valdimarsdóttir, dags. 31. ágúst 2023 og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, dags. 4. september 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.