Vogahverfi - breyting á deiliskipulagi - Langholtsvegur 169 - til afgreiðslu - SN220432 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 6. júlí 2022 varðandi breyti
Langholtsveg 169
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 932
14. september, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 6. júlí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 169 við Langholtsveg (hús nr. 169 og 169A við Langholtsveg). Í breytingunni felst að byggingarreitur er afmarkaður austan við húsið, samkvæmt uppdr. KRark dags. 5. júlí 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. september 2022 til og með 24. október 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Friðþjófur Johnson dags. 12. og 20. október 2022 og Herborg Árnadóttir Johansen, Örn Marinó Arnarson, Anna Rúnarsdóttir og Ólafur Stefán Magnússon dags. 20. október 2022. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. september 2023.
Leiðrétt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2023.
Rétt bókun er: Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. september 2023, og með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.