Fyrirspurn
Norður Mjódd - Stekkjarbakki 4-6 og Álfabakki 7 - skipulagslýsing - SN220741 Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing Klasa og JVST, dags. í maí 2023 vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Norður Mjóddar fyrir lóðirnar Stekkjarbakka 4-6 og Álfabakka 7. Í vinnu vegna breytingar á deiliskipulagi verður áhersla á blandaða byggð. Á lóðunum verði komið fyrir íbúðum, matvöruverslun, atvinnustarfsemi, dvalarsvæðum og samgönguinnviðum. Breytingin felst m.a. í því að breyta byggingarreitum, lóðarmörkum, hæð húsa og fjölbreyttri landnotkun frá því sem gildandi deiliskipulag frá 1999 heimilar. Ekki er um stækkun lóða að ræða en lóðarmörk geta breyst. Lýsingin var kynnt frá 27. júlí 2023 til og með 31. ágúst 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Guðmundur H. Einarsson, dags. 28. júlí 2023, Umhverfisstofnun, dags. 1. ágúst 2023, Minjastofnun Íslands, dags. 11. ágúst 2023, Verkefnastofa Borgarlínu, dags. 15. ágúst 2023, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 16. ágúst 2023, Vegagerðin, dags. 17. ágúst 2023, Kópavogsbær, dags. 18. ágúst 2023, Veitur, dags. 18. ágúst 2023, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, dags. 18. ágúst 2023, Skipulagsstofnun, dags. 23. ágúst 2023, íbúaráð Breiðholts, dags. 31. ágúst 2023, Hildur Gunnarsdóttir f.h. 116 íbúa og fasteignaeigenda í 63 fasteignum í Stekkjum, Bökkum og Selum, dags. 31. ágúst 2023, fjögur nöfn úr tveimur húsum bættust við undirskriftalistann, sbr. tölvupóst Hildar Gunnarsdóttur, dags. 7. september 2023, skipulagsdeild Strætó bs., dags. 31. ágúst 2023 og Sigrún Valdimarsdóttir, dags. 31. ágúst 2023. Vísað til meðferðar verkefnastjóra.