Reitur 1.182.1 - breyting á deiliskipulagi - Grettisgata 20A og 20B - SN220693 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Xyzeta ehf. dags. 26. október 2022, ásamt bréfi dags. 6. maí 2023
Grettisgötu 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 930
31. ágúst, 2023
Annað
Fyrirspurn
Reitur 1.182.1 - breyting á deiliskipulagi - Grettisgata 20A og 20B - SN220693 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Xyzeta ehf. dags. 26. október 2022, ásamt bréfi dags. 6. maí 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.182.1 vegna lóðanna nr. 20A og 20B við Grettisgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að koma fyrir tveimur stigahúsum ásamt stækkun á íbúðum út á milli stigahúsanna og svölum á Suðurhlið 20A og 20B. Auk þess verður heimilt að rífa bakhús og reisa þar einlyft íbúðahúsnæði með kjallara og risi, samkvæmt uppdr. Sturlu Þórs Jónssonar arkitekts, dags. 29. apríl 2023. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdrættir, dags. 26. júní 2023. Jafnframt eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 8. febrúar 2023 og 15. júní 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. júlí 2023 til og með 24. ágúst 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Benjamin James Frost, dags. 27. júlí 2023, Hjálmtýr Heiðdal f.h. íbúðaeigendur Grettisgötu 18, dags. 16. ágúst 2023 og Þröstur Berg, dags. 24. ágúst 2023. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.