Fyrirspurn
Kvosin, Landsímareitur - breyting á skilmálum deiliskipulagi - SN220435 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 6. júlí 2022 um breytingu á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar, Landsímareits, með síðari breytingum. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að reka gististarfsemi á efri hæðum húsa að Aðalstræti 7 og Vallarstræti 4, er snúa að Ingólfstorgi, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 5. júlí 2022. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 27. apríl 2023. Tillagan var auglýst frá 16. júní 2023 til og með 28. júlí 2023. Engar athugasemdir bárust. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.