Kjalarnes, Saltvík - breyting á deiliskipulagi - SN220797 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf., dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 919
15. júní, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf., dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst að færa reiti C og D til að koma reitunum nær núverandi vegi og koma jafnframt reit C fjær reit B, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 9. febrúar 2023. Einnig er lögð fram fornleifaskráning Fornleifastofnunar Íslands frá 2020 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 1. mars 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. apríl 2023 til og með 9. júní 2023. Engar athugasemdir bárust. Einnig eru lagðar fram umsagnir íbúaráðs Kjalarness, dags. 16. maí 2023 og Minjastofnunar Íslands, dags. 1. júní 2023 og ábending Veitna, dags. 17. maí 2023.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.