Vagnhöfði 29 - breyting á deiliskipulagi - SN220544 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn UNDRA ehf., dags. 2. september 2022, ásamt greinargerð, dags. 5. september 2023, um breytingu á de
Vagnhöfði 29
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 919
15. júní, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn UNDRA ehf., dags. 2. september 2022, ásamt greinargerð, dags. 5. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða iðnaðarsvæðis vegna lóðarinnar nr. 29 við Vagnhöfða. Í breytingunni sem lögð er til felst að núverandi byggingar á lóðinni verði fjarlægðar og í staðinn verði heimilt að byggja 7 hæða byggingu þar sem tvær efstu hæðirnar verða inndregnar að stórum hluta. Aðkoma að byggingunni verður bæði frá göturýminu og inngarðinum. Auk þess er gerð lítilsháttar breyting á lóðarmörkum ásamt því að heimilt verði að nota þak sem dvalarsvæði, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum (6 stk.) UNDRA ehf., dags. 5. september 2022. Tillagan var auglýst frá 25. apríl 2023 til og með 9. júní 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Sigmundur Grétarsson, dags. 25. apríl 2023 og Benedikt Eyjólfsson, dags. 6. júní 2023. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 1. júní 2023.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.