Fyrirspurn
Suðurgata 6 - (fsp) breyting á deiliskipulagi - SN220673 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. janúar 2023 var lögð fram fyrirspurn Alternance slf., dags 21. október 2022, ásamt greinargerð, ódags., um breytingu á deiliskipulagi reits 1.161, Suðurgata-Garðastræti, vegna lóðarinnar nr. 6 við Suðurgötu sem felst í að gera upp gömlu bygginguna í sem upprunalegustum stíl, rífa seinni tíma viðbyggingu og að byggja nýtt tveggja hæða bakhús innst á lóðinni, samkvæmt uppdr. Alternance slf., dags. 29. júlí 2022. Einnig var lagt fram skuggavarp Alternance arkitektúr, dags. 29. júlí 2022, umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. ágúst 2022 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. janúar 2023. Fyrirspurn er nú lögð fram að nýju ásamt breyttri tillögu Alternance arkitektúr, dags. 29. júlí 2022, ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina (deiliskipulags- og skuggavarpsuppdrættir), dags. 14. apríl 2023. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. júní 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. júní 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Suðurgata 6