Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. maí 2023 þar sem sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu og breytingu á innra skipulagi, þ.e. 1. og 2. hæðir stækka, breyta verslun í íbúð í rými 0201, breyta geymslu sem var áður með rýmisnúmer 0003 í tómstundarherbergi með nýja baðherbergisaðstöðu, breyta bílskúr í vinnustofu, innra breytingar á öllum þremur hæðum ásamt því að breyta staðsetningu inntaks, fjarlægja stiga á milli hæða og þess í stað koma fyrir nýjum stiga á norðurhlið, endurnýja inngang á 2. hæð, byggja svalir á vesturhlið, endurnýja kvisti og breyta þaki, breyta fyrirkomulagi á lóð með því að breyta landhalla, fækka um eitt stæði af fjórum og færa sorpskýli í húsi á lóð nr. 89 við Langholtsveg. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.