Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. maí 2023 þar sem sótt er um leyfi til að stækka svalir og koma fyrir heitum potti á svalir við íbúð 01-0201, koma fyrir heitum potti á verönd íbúðar 01-0101 og gera hurð frá gangi in í bílgeymslu, rými 02-0102 í tvíbýlishúsi á lóð nr. 12 við Brúnaveg. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.