Ármúli 38 - breyting á notkun - BN060263 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. mars 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. mars 2023 þar sem sótt er um leyfi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 911
13. apríl, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. mars 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. mars 2023 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun rýmis 0302, matshluta 02, úr skrifstofu í íbúð í húsi á lóð nr. 38 við Ármúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. apríl 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. apríl 2023, samþykkt.