Ægisíða 62 - breyting á deiliskipulagi - SN210597 Lögð fram að nýju umsókn Alternance slf. dags. 1. júlí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ægisíðu frá Hofsvallagötu að Lynghaga vegna lóðarinnar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 911
13. apríl, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju umsókn Alternance slf. dags. 1. júlí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ægisíðu frá Hofsvallagötu að Lynghaga vegna lóðarinnar nr. 62 við Ægisíðu. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á byggingarreit lóðarinnar þar sem byggingarreit er skipt niður þannig að aðalreitur verður í kringum núverandi byggingu og minni reitur fyrir sjálfstæða viðbyggingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. Alternance slf. dags. 26. janúar 2023. Einnig er lagður fram skuggavarpsuppdr. dags. 26. janúar 2023.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ægissíðu 60 og 64 og Tómasarhaga 35, 37, 39 og 41.